16 Bjóra Veztin
Könnun
Hver sigrar jólamót Tígranna 2009
Addi B.
5 atkvæði

Bakkusinn
3 atkvæði

Herr Pjetur
3 atkvæði

JIM
2 atkvæði

Mr. Biggs
10 atkvæði

Olsen
2 atkvæði

Pjotr
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 26
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 161493
28.06.2010 00:42:17 / Bakkusinn

Sumarmót Tígranna 2010

Jæja tígrar,

Þá fer að líða að því að sumarmót Tígranna verði haldið við hátíðlega athöfn, staðurinn er sá sami og síðustu tvö ár og dagsetninginn er 16-18 júlí. Þetta verður helgarferð eins og síðast, förum á föstudagskvöldi og byrjum snemma á laugardeginum. Mótið verður með ögn breyttu sniði þetta árið (nánar tilkynnt síðar) og greinarnar eru tilbúnnar hjá mótsnefnd eins og lög um sumarmót gera ráð fyrir á þessum tíma.

Þá er bara að koma sér í ferðagírinn og gíra sig upp í flott mót í ár. Hver tekur við farandbikarnum af Bigga og hver endar neðstur... 

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2010 11:43:45 / Mr. Biggs

Ísland á EM í Austurríki

-Tígrarnir með 1 fulltrúa

Nú er komið að því sem margir hafa beðið eftir(samt ekki Harry). EM í handbolta hefst þann 19.janúar og leika Íslendingar sinn fyrsta leik gegn Serbíu að mér skilst. Tígrarnir hafa einn fulltrúa á svæðinu...í búning...en þó of litlum búning og upp í stúku..

Björn Guðmundsson heitir hann. Hann er þrítugur að aldri og einhleypur.
Mun hann taka að sér að drekka bjór, bæði hveitibjór og lager, í takt við þorsta viðkomandi. Þeir sem þekkja björninn, og heyrðu af 10 km skokki herr Pjetur sem ofþornaði, vita að vökvi er gríðarlega mikilvægur. Styðjum við því Björninn í hans öskrum, drykkju og fíflalátum, megi honum farnast það vel úr hendi ásamt Bjarka félaga sínum.


Áfram Ísland!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.12.2009 09:36:56 / Mr. Biggs

Sigurvegari Tígramóts

Nefndin hefur ekki ennþá birt sigurvegara Jólamóts Tígranna í ár.
Það gerist þá hér með. Það var sá sami og síðast.

Kv.
Mr. Biggs

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2009 14:01:52 / Addi B.

Talning herr

Þá er komið að því, jólamót Tígranna 2009 fer fram á morgun.  Aldrei hefur verið eins mikil stemmning í Tígra minnum og nú.  Sálfræðistríðið milli keppenda byrjarði óvenjusnemma í ár og er víst að keppnin verður hörð og ströng.

Í ár verður kynnt til sögunnar ný grein sniðin úr gömlum greinum, það er tímaþraut og spurningakeppni sett saman í einn graut og út úr kom tíma-og spurningagrein. Já, það er ekki verið að kaupa neitt úr Æsufellinu í ár, bara alvöru stöff.  Að sjálfsögðu verða svo gamlar greinar til staðar, ekki má hrófla of mikið við íhaldinu herr.

En það er ekki bara ný grein í ár heldur mun Olsen mæta í nýju vezti, beint af saumastofunni og Mr. Biggs með nýja greiðslu.  Mr. Biggss hefur talað talið en getur hann labbað labbið? Pjotr virðist ætla að pjotra keppnina í ár...líkt og önnur ár og Herr Pjetur mætir á hrokanum, er með til að vera með.  Aðrir Tígrar þykja líklegir til að stela senunni í ár ef marka má skoðannakönnun sem var gerð fyrr á dögunum.

En nóg af bulli, það er kominn tími á talningu herr. Eins og venjan er fer talninginn fram fyrir mót og í ár er engin undantekning. Eftirfarandi var fært inn í bókhaldið fyrir þetta tímabil:

Addi B. setti 14 stykki þetta tímabilið, sex fleirri en síðasta og hefur því safnað 174 í heildina.
Bakkusinn tók þá fimm þessa önnina líkt og fyrri hluta ársins er hann var með fimm einnig. Samtals 131.
Meistari Biggs kom sterkur inn þetta tímabil líkt og önnur og framreiddi heila 11 pistla sem er samt dálítið slakari árangur en fyrri hluti ársins er hann var með 17. Samtals er meistarinn með 136.
Herr Pj kom sá og afhenti.  Pj var með heila tvo pistla þetta seasonið og það er tveimur pistlum betra en frá því í síðustu talnginu. Samanlagt er herr með því 104.
Pjotr pjotraði þetta líkt og annað. Enn því með 39.  Sama á við hina. JIM með 13 og Olsen með einn.
Í heildina gerir þetta því 32 pistlar eða tveimur pistlum betra en frá því fyrri part ársins er við skiluðum af okkur 30 kvikindum.  Yfir allt er þetta þá komið upp í 598 færslur.

Sjáumst á morgun á keppnisstöð 1.

Foringinn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2009 14:46:11 / Addi B.

Ertu búinn að finna guggu til að afhenda bikarinn herr?

Ef ekki þá förum við í það



» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2009 17:38:17 / Bakkusinn

Pistlasöfnun herr...

Jæja Biggi minn, ég ætla ekkert að vera leiðinlegur en ég get líka safnað pistlum :) Þeir telja víst allir herr... augi rétt :)

Annars verður þessi pistill ekki um neitt, gæti reyndar nefnt það að nenfdin kom til mín í vikunni og það er allt klárt á mótsstað 1 fyrir utan það að eftir á að gera jólalegra og setja taflborðið á réttan stað...

fleira var það nú augi Biggi minn...

Kv. Bakkusinn

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2009 10:03:16 / Mr. Biggs

Veikleikar Tígranna

Mikið sálfræðistríð er hafið fyrir Jólamótið.

Addi B. reynir að sýna ofursjálfstraust þrátt fyrir að hafa ekki unnið neinn bikar herr. Hann reynir allt sem hann getur..en þetta er klárlega veikleiki hjá herr.
Pjotr verður að ganga vel í fyrstu greinum...annars brotnar hann niður og verður ómögulegur það sem eftir er.

Meira síðar...

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2009 11:15:31 / Addi B.

Bannað að skemma síðuna herr

[modified] Hér gefur að líta video frá Adda B. [/modified]

Jólamótsnefndin mun tilkynna mótsgjald í kvöld eða morgun.

kv,
jólaálfurinn

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2009 17:12:43 / Addi B.

Jólamótið að skella á ...

...æfingArnar eru hafnar:)

[modified] Hér gefur að líta video frá Adda B. [/modified]

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2009 16:34:10 / Mr. Biggs

Jólamót eða jólasveinamót

-með einn Svein á meðal vor

Nú er komið að því sem menn bjuggust við.....menn farnir að æfa sig!!! Heyrst hefur að Addi B.(var ölvaður skilst blaðamanni) og Herr Pjetur voru í Pool (nei Harry, ekki lyfta)...þetta er auðvitað týpískt fyrir þá sem eru hræddir um að tapa...þeir panika og fara æfa sig stanslaust....

-Heyrst hefur að Jim sé þessa stundina að selja síðasta Porsche fyrir jól en hann mun víst hafa farið til Kazakstan en þeir eru með mjög gott credit hjá Jim eftir að Borat myndirnar komu út...

-Heyrst hefur að Addi B. sé nú kominn í samkeppni við Baugsveldið með útgáfu Tígraritsins..Jón Ásgeir bauð Adda 100 kúlur en hann misskildi þetta sem nammikúlur og sagði að Kristín bannaði sér að borða nammi....hér var auðvitað verið að tala um 100 miljónir í vasann....svart og sykurlaust

-Heyrst hefur að Olsen sé þessa daganna að láta konuna sína sauma á sig Tígranærbuxur því hann vill meina að það sé mega happa og muni færa honum sigurinn í ár..

-Heyrst hefur að Bakkus sé þessa daganna að rífa í sundur fjórhjólið sitt eftir léttan sundsprett að hætti Hasselhof...

-Heyrst hefur að Bakkus og Mr. Biggs séu farnir að brugga rauðvín og má vænta afraksturs af þeirri starfssemi strax á nýju ári...hugsanlega verður hægt að kaupa af þeim félögum flösku gegn vægu gjaldi

-Heyrst hefur að Pjotr sé þessa stundina að tefla af sér rassgatið en tapi daglega fyrir Beggu sinni....líklegt þykir að Pjotr sé ekki duglegur að einbeita sér að skákinni en er þeim mun meira að horfa á Beggu sem spilar ávallt í fleygnum bol(atvinnumaður á ferð)

Góðar stundir


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2009 21:00:39 / Herr Pjetur

JÓLAMÓT TÍGRANNA 2009

El Tigros! Jólamót Tígranna 2009 fer fram að þessu sinni þriðjudaginn 22. desember.

Mótið fer fram á þremur stöðum, það er húsakynnum Bakkusar, Keiluhöllinni og Sn
óker og Poolstofunni. Líkt of fyrri ár verður pantaður matur á keppnisstöð eitt og svo snæddur kvöldmatur á stöð 2. Mótsgjald er tilkynnt síðar. Nefndin minnir á að 16 bjóra veztin eru skilyrði fyrir þátttökurétti líkt og önnur ár.

Tígrar skulu mættir á keppnisstöð eitt klukkan 11.00 að morgni svo hægt sé að skála í hádegisdrykk, fara yfir greinArnar, skíta þeir sem eiga það eftir og girða sig eftir þörfum.

 
Mótið inniheldur eftirfarandi greinar:

Keppnisstöð 1

1. Borðtennis
Allir spila gegn öllum.
Spilað verður upp í 11 en þó verður að vinna með tveimur stigum.
Ef Tígri kemst í 7-0 jafngildir það sigri.
Hver og einn tekur tvær uppgjafir í senn.

Henda þarf boltanum upp um amk 15 cm (verður ekki mælt, en augljóst verður að vera að honum hafi verið hent upp). Bannað er að fela bolta í lofa í uppgjöfum.
Sá sem vinnur hlutkestið ræður hvort hann vill byrja skal leik eða velja sér vallarhelming.
Spilað er á sama helmingi allan leikinn.
Eitt stig fyrir sigur.

2.      Pílukast
Fimm umferðir eru spilaðar
Þremur pílum kastað í hverri umferð.
Sá sem fær hæsta skor samanlagt sigrar.
Stiganeðsti Tígurinn byrjar og svo koll af kolli.
Stig eru gefin eftir 0-1-2-3-4-5-6 kerfinu.

3.      Tíma- og spurningakeppni
Í þessar grein reynir á hraða, gáfur og heppni.
Greininni er skipt í nokkrar stöðvar þar sem hver Tígur þarf að leysa hinar ýmsu hindranir að markinu. Þrjú spurningaspjöld, sem eru partur af greininni, verða dregin á staðnum af velunnurum Tígranna. Við hvert rangt svar eða pass við spurningu, bætist mínúta við lokatímann. Greinin er einföld og verður útskýrð betur á staðnum.
Stig eru gefin eftir 0-1-2-3-4-5-6 kerfinu.

4.      Fótboltaspil
Spilað er einn á einn og allir leika við alla.
Hver leikur er spilaður upp í 10 stig.
Hlutkesti fer fram fyrir leik. Sá sem vinnur hlutkestið ræður hvort hann byrji með boltann hjá markmanni eða velji vallarhelming til að spila á.
Spilað er á sama vallarhelmingi allan leikinn.
Snúningar bannaðir.
Eitt stig er gefið fyrir sigur.

5.      Skák
Spilað er einn á einn og allir leika við alla.
Taflpeðum er ruglað í hendi áður en byrjað er og skal hvítur byrja en svartur ráða staðsetningu á klukku.
Klukkan verður stillt á fimm mínútur.
Eitt stig er gefið fyrir sigur.


Keppnisstöð 2


6.      Keila
Spilaðir verða tveir leikir eða 20 rammar.
Standard kerfi fá Keiluhöllinni verður notað til að reikna stig og ræður samanlagður heildarstigafjöldi beggja leikja stigaröð keppenda.
Stig eru gefin eftir 0-1-2-3-4-5-6 kerfinu.

Keppnisstöð 3


7.      Pool
Spilað er einn á einn og allir leika við alla.
Hlutkesti með standard 100 ISK fer fram fyrir hvern leik og ræður sá sem það sigrar hvort hann byrji eða ekki.
Ef hvítu kúlunni er skotið ofan í vasann eða út af borðinu skal hinn stilla upp á merktu svæði aftast í borði (innan boga eða þar sem boginn á að vera) og skjóta áfram þaðan. Eitt skot og skal standa við enda borðsins.
Ef leikmaður hittir ekki sína kúlu fyrst fær andstæðingurinn 2 skot.
Til að vinna þarf að skjóta öllum sínum kúlum ofan í vasana auk þess að skjóta þeirri svörtu ofan í fyrirfram ákveðinn vasa.
Ef svarta kúlan fer ofan í á annan hátt tapar viðkomandi leiknum.
Ef svarta kúlan fer ofan í smassi þ.e. í fyrsta skoti hvers leiks er það sigur fyrir þann sem skýtur, nema hvíta kúlan fari einnig ofan í, þá er það tap.
Ef leikmaður á einungis eftir að skjóta svörtu kúlunni ofan í og skýtur þeirri hvítu ofan í eða út af borðinu tapar hann leiknum. Þetta á eining við ef hvíta kúlan fer ofan í eða út af borðinu í sama skoti og sú svarta.
Ef svörtu kúlunni er skotið ofan í í sama skoti og síðasta litaða kúlan er það sigur ef sú svarta fer ofan í á eftir en annars tap.
Ef kúlu andstæðingsins er skotið út af borði jafngildir það að henni hafi verið skotið ofan í, ef eigin kúlu er skotið út af borði skal stilla henni upp á punkti eða við batta ef punkturinn er ekki laus.
Eitt stig er gefið fyrir sigur.

Aðrar reglur

Klára þarf einn mótsbjór með hverri grein.

Sigurvegari/sigurvegarar hverrar greinar taka staup. Notað er standard Jólamótsstaup.

Stigagjöf:

Hver og einn sigur í fótboltaspili, borðtennis, skák og pool gefur eitt stig, ekki eru gefin aukastig fyrir að sigra í grein. Í keilu, pílukasti og tíma-og spurningakeppni verður notast við 0-1-2-3-4-5-6 kerfið þ.e. sá sem tapar fær 0 stig o.s.frv.
Ef tveir eða fleiri Tígrar eru jafnir í einhverri af þessum greinum þá skiptast stigin á milli þeirra. Stigin verða svo talin í heildina og sigrar sá sem hlýtur flest stig.
Ef einhverjir eru jafnir í lokin gilda innbyrðis viðureignir þeirra í milli (innbyrðis viðureignir eru: fótboltaspil, borðtennis, skák og pool).

Ef einhverjir eru enn jafnir eftir að tekið hefur verið tillit til innbyrðis viðureigna, gildir:

1.         sá sem er oftar í 1. sæti.
2.         sá sem er oftar í 2. sæti.
3.         O.s.frv þar til sigurvegari fæst
Allra síðasta úrræði ef það gengur ekki: spilaður verður hreinn úrslitaleikur í síðustu keppnisgrein.

Mínusstig er fyrir að klára ekki öl með hverri grein.

Verðlaun eru fyrir efstu þrjú sætin. Bikar er einnig veitur fyrir sigur í mótinu.

Jólamótsnefndin 2009.


» 15 hafa sagt sína skoðun

01.12.2009 09:26:43 / Bakkusinn

Jólamót Tígranna 2009

Nei hjer er eg augi að skrifa niður greinArnar sem verða á Jólamóti voru í ár enda ekki í mínum verkahring að mata nefndina herr... en aftur á móti er ég að minna okkar ágætu jólamótsnefnd á að það er skiladagur í dag á móti, frestur rennur út á miðnætti... annars mun mót skilanefndar gilda í ár og það væri í fyrsta skipti sem jólamótsnefnd mynd skíta uppá bak og skilanefnd þyrfti að setja upp mót, en mót skilanefndar er tilbúið öngvu að síður.

En ég hef fulla trú á jólamótsnefnd þetta árið, frekar blaut nefnd samt sem áður (hefur haft "fundi" frekar mjög reglulega til að hafa "afsökun" til að fá sér "einn og einn" eða upp að mörkum hverju sinni) (þó sumir fari oftar en ekki rétt yfir línuna)...

En hlakka til að sjá mótið á eftir :)

Kv. varaformaður skilanefndar         

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2009 10:15:24 / Mr. Biggs

Mata nefndina herr....


Alltaf þarf nú að mata nefndina....styttist í lokadrög af Jólamóti Tígranna fyrir 2009. Nefndin er eitthvað slöpp þetta árið svo menn eru alls 3 í nefndinni...sumir virkari en aðrir...

Það þarf ekki að brýna fyrir mönnum að það eru skil á greinum 1.des næstkomandi og þá þarf að vera komið plan og svona....ekkert slump frá verkfræðingnum í plastbátaleik :)

Addi B. er byrjaður að undirbúa þrítugsafmælið sitt á næsta ári og taldi hann upp fyrri og seinni daginn....bara það hljómar gríðarlega vel...eins og staðan er núna þá hefur Addi klárlega vinningin yfir veislu ársins 2010! Verður fróðlegt að sjá hina Tígranna reyna toppa þetta...


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2009 13:10:12 / Mr. Biggs

Asswipe

-mun Halli bö, aka Halli 3.000 birtast á skjánum

Helstu vangaveltur frænda Harry´s, Pjetur, er hvort hann muni sjást á skjánum sem fyndin atvik, besti árangurinn eða hreinlega ekkert sjást...8|

Nú er svo komið að lítill veðbanki hefur litið dagsins ljós og mun "frændi" harrys taka við hvers kyns veðmálum og stöðutöku sem menn vilja. Heyrst hefur að hann sé með gríðarlegar innherjaupplýsingar um stöðu mála og hefur jafnvel hringt upp á Stöð 2 til þess eins að koma frænda sínum að...
Fleiri hafa gert að því skóna að hann hafi hreinlega aldrei farið til Argentínu og sé núna að borga visa-reikningin eftir að hafa tekið vitlausa vél. Talið er líklegt að Harry hafi flogið til Mexíkó enda kannaðist hann mikið við landið eftir alla þessa heavy umræðu að undanförnu(svínaflensan...innsk blaðamanns).:lol:
Nú er svo komið að Harry mun mæta í Smáralindarbío í byrjun desember til að skrifa eiginhandaáritanir enda býst hann við heimsfrægð eftir að hafa "sloppið" við svínaflensuna þrátt fyrir ferðalög...:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 41
Dagsetning
30. júlí 2010
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 júní